Góðann daginn gott fólk segji ég næturhaninn sjálfur..
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla allir saman sem skoða þetta blogg mitt.
Það er semsagt ýmislegt búið að gerast síðan að ég bloggaði siðast, jólin gengu í garð og fékk ég fullt af æðislegum gjöfum nennir varla að telja það upp eins og staðan er akkurat núna kannski geri það seinna.

Áramótin voru mjög fín.. það var borðaður mjög góður matur hérna hjá tengdó, lambakjöt og Svínakjöt og brúnaðar kartöflur og meira með því...mmmm megas gott, það var slatti af fólkinu hennar söru hér og þetta var rosa gaman! eftir matinn var að ganga frá og svo beðið eftir skaupinu með því að spila og spjalla saman.. Og skellt sér á brennur, fórum á brennu hjá Breiðabliki og flugeldasýningin var geggjuð!!! ég hef sjaldan séð jafn flotta sýningu..hehehe
ég verð að segja það að það komu punktar í skaupinu sem voru góðir eins og t.d. þegar Davíð kom inn og skaut ísbjörninn þegar hann ætla'i að fara að segja hvað væri rétt a' gera og að hann væri sko með lausnina.
Jón Gnarr var mjög góður í þessu skaupi og klárlega bjargaði því að vissu leyti.
svo eftir skaupið var farið út og gert allt ready fyrir það að sprengja inn nýtt ár! og það var hellt í freyðivínsglös og skálað fyrir nýju ári nokkrar mín í tólf og þetta var ekkert smá gott kampavín!! mmmm.... svo var skotið upp og fékk ég þann heiður að kveikja í öllum tertunum og það var rosa gaman hehehe...
Svo var það að knúsa alla gleðilegt nýtt ár og þakka fyrir það gamla.
Svo fórum ég og sara í partý að ganga kl.1.30 og fórum til Andrésar og Margrétar og þar voru Siggi og vinur hans og eitt annað par sem ég man ekki alveg hvað heitir í augnablikinu hehe .. og eftir partýið og spilið strákar á móti stelpum sem við strákarnir tókum 10 stig gegn 3 minnir mig. . og eftir það var haldið niðrí bæ og á Apótekið og það var mjög gaman og það var djammað til kl.6 ríflega og við komum svo heim í fínum gír og skemmti ég mér bara nokkuð vel takk fyrir kvöldið elskurnar...
En ég nenni varla að skrifa neitt meira... heyri betur í ykkur. bæjó!